Jaháááá svona þegar að maður er farin að gelyma lykilorðinu inn á síðuna sína, þá er sko alveg komin tími til að blogga hehe

Annars er nú bara ekkert búið að gerast frá því síðast, alltaf sama sama skóli, vinna og íþróttir. Váááá get ekki munað eftir neinu síðasta mánuðinn sem er svo merkilegt að ég setji það hér inn.... Jújú nokkrar bíóferðir og ísferðir með Svenna og Ránari. Lovísa kom hérna um daginn og við áttum skemmtilega helgi saman hehe
Klukkan 9 að laugardagskveldi vorum við búnar að horfa á heila bíómynd og búnar að slátra ostapopppoka og nokkrum lítrum af gosi hehe og vorum svo bara tilbúnar í að fara að sofa. En þegar að við litum á klukkuna ákváðum við nú að skella okkur aðeins á klúbbinn og gá hversu góður DJ hann Fannar vinur minn er
Hann er sko massíft góóóóður, bara mæli með honum krakkar
En já eiginlega átti þetta blogg heldur ekkert að verða blogg, meira svona jólagjafalisti, af því að fjölskyldan mín er alltaf að spyrja mig að því hvað ég vilji í jólgjöf og ég get aldrei svarað því. En núna ætla ég að reyna koma einhverju niður á blað. Það er enginn röð á þessu hjá mér, mig langar bara jafn mikið í allt saman
Lítin coke cola Ísbjörn sem að situr, er sætur og drekkur coke..... og hann á sko að vera alvöru.
Joe Boxer náttbuxur..... ahhhhh uppáhaldsfötin mín eru náttfött og ég verð að eiga einar svona Joe Boxer
Margir geisladiskar eru á listanum en efst eru nýju diskarnir með Birgittu Haukdal og Einari Ágústi..... Helst áritaða takk fyrir. Svo er pottþétt 45 líka að koma sterkur inn.
Flottur handfrjáls búnaður á símann minn(ég á svona Samsung síma), ég er alltaf að keyra og tala í síma. Sem er bara bannað!!!!
Myndin Astrópía væri líka góð í safnið.....einnig nýja Harry Potter myndin.
Ég er líka svona seríufíkill og það væri alveg gaman að byrja á að safna svona seríum eins og Grays Anatomy, Desperet Housewives og One Tree hill( á reyndar seríu númer 1 í henni).
Mig langar mjög mikið í lítið tígrisdýr, sem að verður alltaf lítið.
Nýja Harry Potter bókin, algjört möst að eiga hana
Allskonar snyrtidót, augnskuggar, maskarar og gloss og svona
Ilmvötn og þannig. Eitthvað flott eins og Diesel, DKNY, Hugo Boss eða bara Puma or sum hehe
Skartgripir...... ég elska eyrnalokka, hálsmenn og armbönd og þannig.
FÖT... bara allt sko.... bolir, buxur og þannig.
Langar líka alveg svakalega í svona Dökkbleika eða Kóngabláa Cintamani peysu, sem er svona peysa en samt eiginlega jakki.
Íþróttaföt.... buxur, bol, topp og skó í ræktina
Ýmis konar gjafabréf... t.d í ræktina, í ljós, í Kringluna eða svolleiðis
Svo er náttúrulega líka alltaf eitthvað lítið eins og nýr Toyota Yaris, íbúð upp í Mosfellsbæ og margt annað hehe
Já þá er þetta bara komið og ég ætla bara að segja ykkur strax að þessi listi er sko alls ekki tæmandi, þetta eru bara svona nokkrar hugdettur
Ákvað að skrifa þetta svona þar sem ég á að vera læra undir próf en nenni því ekki hehe
Á síðasta föstudag fórum ég, Kalli, Lilja, Garðar, Svenni og Fannar á skauta,,,,,,, sheeeeeeet hvað þetta var gaman. Þetta var líka svo kósý að skauta þarna og hlusta á jólalög
Samt kom ég heim með nokkra marbletti þar sem að Kalli og Fannar voru alltaf að fella mig múhahaha
En heyrumst seinna krútt... úúú ekki nema 2 dagar í jólafrí og 8 dagar í að ég komi heim pa Nesk
Já og af því að ég nenni pottþétt ekki að blogga aftur fyrir jólin þá segi ég bara gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ár elskurnar:*:*
HAHAHAHAHA


-Saló